https://hreyfing.is/vefverslun/namskeid/nytt-cyclothon-hjolanamskeid/416
Nú er að hefjast spennandi hjólanámskeið í Hreyfingu sem ég og Rúnar Karl liðsfélagi minn í Team Örninn Trek munum halda utan um. Þetta mun verða spennandi og gefandi tækifæri til að þróa sig enn betur sem hjólanörd. Frá því ég byrjaði mitt tækifæri hef ég lært svo mikið af öðrum sem hefur gefið mér gríðarlega dýrmæta hvatningu og ekki síður reynslu. Nú verður gaman að vera í því hlutverki, að gefa af sér og vonandi vera öðrum hvatning. Námskeiðið hefst 21. febrúar og er 8 vikur. Við munum keyra í gegn gott æfingaprógram sem hefur hentað okkur vel, byrjum á góðum grunn æfingum, bætum svo við æfingum með meiri ákefð og endurtekningum með það að markmiði að allir sem námskeiðið sækja læri að stýra sinni ákefð og verði betri hjólreiðamenn.
https://hreyfing.is/vefverslun/namskeid/nytt-cyclothon-hjolanamskeid/416
0 Comments
![]() Í október datt vinur minn niður á frábært fæðubótaefni frá Prótis sem kallast liðir. Prótís er íslenskt fyrirtæki sem vinnur fæðubótarefni úr fiski. Liðir er unnið úr kollagen-ríkum skrápi sæbjúgna með viðbættu vatnsrofnu þorksprótín fyrir viðhald vöðva og virkaði vel á hann og hjálpaði honum með hans hnévandamál. Þessi ágæti vinur minn er þannig úr garði gerður að auðvitað þurfti ég að prufa líka, þó ég væri ekki með nein hnévandamál en Prótís framleiðir einnig á sama hátt amínósýrur sem er gott að taka rétt fyrir æfingu og strax eftir æfingu. Einnig er framleitt amínó létt sem er Vatnsrofið þorskprótín, króm og pikólínat ásamt náttúrulegum trefjum, semsagt seðjandi. Hann var sannfærður um að þetta gæti gagnast mér og úr varð að ég fékk að prufa, án allra skuldbindinga þessi þrjú efni. Ég byrjaði í nóvember og var það liður í undirbúningi fyrir 3 daga hjólaferð í lok mánaðarins. Ég notaði mest Amínó létt til að halda þyngd í skefjum sem hefur verið erfitt undanfarið ár, svo 100% amínó eftir erfiðar æfingar og Liði sömuleiðis í erfiðum æfingalotum. Á síðasta degi æfingaferðarinnar tók ég lengstu dagleiðina, 5 klifur á dagskránni og það síðasta tók ég á fullu afli, mér leið frábærlega alla leiðina upp, ég hjólaði á hærra afli en ég bjóst við, mér leið vel og finnst mér því eins og vini mínum að þurfi endilega að segja ykkur frá :). Ég hef nú náð að létta mig um 5kg frá því ég byrjaði, ég er léttari en síðasta sumar sem er óvanalegt fyrir mig því ég þyngist alltaf eitthvað á veturna. Mér vantar að losna við 5 kg í viðbót hið minnsta og ætla ég mér það með skynsemi í matarræði, hjólreiðum eins og vanalega og Aminó Létt. Þar sem Meistaramánuðurinn er nú að hefjast finnst mér auðvitað rétt að taka hann alla leið. Næsta verkefni er Tenerife í lok febrúar. Þar verð ég í viku að kljást við brekkurnar sem sigruðu mig í fyrra, nema nú ætla ég að sigra þær. |
Ísmaðurinn á InstagramGamalt
March 2017
Flokkar
All
|