
![]() Strax í fyrstu brekkum var hraðinn keyrður vel upp og ég eins og alltaf dróst ég aftur úr í brekkunum. Á toppnum slitnaði á milli manna og 6 manns komust frá og myndaðst fljótt hópur með öðrum 7 manns þar fyrir aftan.... lesa meira
1 Comment
Að kvöldi 3. Júlí verður Alvogen Midnight Time Trial haldið. Í fyrra var þetta ein af flottustu keppnum ársins 2013 eins og ég fjallaði um í keppnissögunni. 100 keppendur tóku þátt í fyrra og má búast við að það verði mikil aðsókn einnig í ár. Ég er með tryggt sæti í keppnina og keppi að sjálfsögðu :) ![]() Það var mikill heiður þegar Hjólamenn sem skipuleggja Jökulmíluna ákváðu að nota mynd af mér á plaggat og auglýsingu fyrir Jökulmíluna 2014. Þessi mynd hangir núna uppi í öllum hjólabúðum og stór auglýsing birtist í dag í sérblaði Fréttablaðsins, Fólk, þar sem hjólreiðar voru helsta umfjöllunarefnið. Ég er að sjálfsögðu búinn að skrá mig í Jökulmíluna 2014 og treysti á að fá nýja svona mynd þar sem ég hef létt mig um 10 kg á milli ára og farinn úr stærð 6 niður í stærð 3 :) Jökulmílan er ein af mínum uppáhaldskeppnum og eins og ég fjalla um í keppnissögunni frá því í fyrra tókst mjög vel upp með keppnina í fyrra. Skráning fer fram hér: www.jokulmilan.is/ Hrikalega er töff og gaman að skoða á myndrænan hátt hvernig wött og púls virka. Hér er enn eitt myndbandið frá Mallorca :) Til að auka á skemmtanagildi hjólreiðatúranna og auðvitað til að fylgja reglum Velominati voru ávallt sprettir að bæjarskiltum í öllum túrum á Mallorca. Í þessu tilfelli höfðum við Árni og Kári stungið hópinn af og keyrðum upp hraðan þegar bæjarmörkin nálguð ![]() Hjólreiðafélag Reykjavíkur í samvinnu við Bílabúð Benna og Porsche héldu Criterium keppni í Hafnarfirði 15. maí. Criterium keppni fer þannig fram að keppendur hjóla á braut sem er 1-2km og í þessari keppni fór A-hópur karla 14 hringi. Í ár var sú nýbreytni var að boðið var upp á þrjá flokka, A, B og C og var gerð sú krafa að C hópur hefði ekki tekið þátt í Criterium keppni áður. Þetta sló í gegn og var C hópur virkilega fjölmennur og ekki var annað að sjá en að allir hafa skemmt sér vel. Yfir 100 manns voru skráðir samtals í alla flokka og var líklega þreföldun á keppendafjölda á milli ára. ![]() Æfingabúðir á Mallorca Þann 9. apríl hélt ég til Mallorca í æfingabúðir Myndir frá ferðinni eru komnar í myndalabúm og nokkur myndbönd. Ég tók mikið upp af efni á Garmin Virb og það sem gerði það að verkum að ég nennti að hafa myndavél á hjólinu var einfaldlega það að hún vistar gps upplýsingar með og því hægt að sjá á korti nákvæmlega hvar maður var að hjóla. Fleiri myndbönd koma inn reglulega í sumar eftir því sem mér gefst tími til að skoða efnið. :) Þessi mjög svo "sérstaki" sjálfumglaði hjólari hjólar og hjólar og hefur bætt lífsgæði sín til muna http://rb.is/um-rb/blogg/nanar/item8544/Sjalfumgladi_hjolarinn ![]() Viðtal við Benedikt Skúlason stofnanda og hönnuð Lauf gaffalsins í Klinkinu á stöð 2. Ýtarleg umfjöllun og skemmtilegt viðtal og pínu nördalegt enda er Benedikt bæði verkfræðingur og hjólreiðamaður, skrítin blanda :) Sjálfur er ég hrikalega stolltur að hafa fengið tækifæri til að prufa gaffallinn en ég hef núna hjólað yfir 2500km á mínum gaffli. Viðtalið má horfá á hér ![]() Ingvar, Haffi, Emil, Óskar, Bjarki og Arnaldur rúlluðu upp steinatröppurnar án nokkurra vandræða í Öskjuhlíðarkeppninni. Ég hægði all nokkuð á myndbandinu sem er tekið upp á 60 römmum á sek. Það sést ágætlega átökin þegar keðjan hoppar slæst til og dekkin kastast til hliðar. Á video síðunni er einnig slow motion video af Ingvari að hoppa fram að kletti, Stelpusamhjólið og Rauðavatnskeppnin ![]() Í kvöld tók ég þátt í Tímatökukeppni á Krísuvíkurvegi þar sem hjólaðir voru 20km. Ég hjólaði á 30mín og 46 sek og hélt 39km meðalhraða. Þessi tími skilaði mér fyrsta verðlaunapeningnum mínum í hjólreiðum frá því ég breytti um lífstíl í apríl 2011, en Gullpening fékk ég fyrir að sigra minn aldursflokk og í heildina var ég í öðru sæti aðeins 14 sekundum á eftir Valgarði. Gleðiefni fyrir mig og fór ég ánægðu heim með það í farteskinu að allt er hægt, ef maður gefur sig allann í það og hefur gaman af því í leiðinni. Keppnissagan er hér Stelpusamhjól var haldið þann 4. maí og mættu um 200 konur og hjóluðu saman Reykjavíkurhring. Hjólað var frá Erninum og meðfram sæbraut að Hörpu þar sem var síðan hjólað út á Gróttu. Þaðan með fram norðurströndinni í Nauthól og endað í Erninum þar sem var boðið upp á súpu og brauð að hætti Yndisauka. Það er María Ögn, hjólakona ársins sem skipulagði ferðina og var allt sérlega vel heppnað. |
Á leiðinni...Leiðin til betra lífs er ekki á enda, nóg eftir og hér verður bloggað um hvað er að gerast. Ísmaðurinn á InstagramGamalt
March 2017
Flokkar
All
|